Saga Þórsnesinga,
Eyrbyggja og Álftfirðinga

Eyrbyggjusögufélagið
Stofnað í Helgafellssveit 2021

Stór og mikill titill þeirrar Íslendingasögu sem gengur undir nafninu Eyrbyggja saga. Sagan gerist á Snæfellsnesi og er héraðssaga svæðisins.

Eyrbyggjasögufélagið var stofnað í Helgafellssveit á Snæfellsnesi árið 2021 í þeim tilgangi að vinna að miðlun sögunnar til áhugasamra.

Gramsað í gömlum og góðum bókum
á Hraunhálsi. 

Töluvert magn bóka hefur safnast í skemmuna á Hraunhálsi og nú er svo komið að boðið verður upp á bókamarkað í Skemmunni. Bækur sem til eru í fleiri en einu eintaki verða til sölu og rennur allt söluandvirði til Eyrbyggjusögufélagsins. Þrjú verð gilda, ekki er posi á staðnum en hægt að leggja andvirðið inn á reikning félagsins.
Kaffi og með því til sölu á meðan opið er og hver veit, eitthvað skemmtilegt verður mögulega á dagskrá kl. 16 – Það er ekkert víst að það klikki! 🪡🥸🎶🤞
Opnunartímar sem hér segir kl. 14-17 þessa daga:

Sunnudagur 29. mars til og með mánudags 6. apríl
Laugardagur & sunnudagur 11. -12. apríl
Laugardagur & sunnudagur 18. -19. apríl

Refillinn kominn heim!

Nú hefur öllum hlutum Eyrbyggjusögurefils verið úthlutað á saumastaði á Snæfellsnesi. Námskeiði í refilsaum er lokið og saumaskapur hafinn víðast hvar.

Staðirnir eru:

  • Hraunháls, Helgafellssveit
  • Amtsbókasafnið, Stykkishólmi
  • Dvalarheimlið, Grundarfirði
  • Þjóðgarðsmiðstöð, Hellissandi
  • Lýsuhólsskóli, Staðarsveit
  • Breiðablik, Eyja- og Miklaholtshreppi

Opnir saumaviðburðir verða auglýstir á samfélagsmiðlum.

Leshringur og gönguferðir

Verið er að lesa Glæsir eftir Ármann Jakobsson og haustið 2026 verður hafist handa við lestur á Laxdælu.

Gönguferðir á söguslóðir Eyrbyggju eru á dagskrá og eru tilkynntar með góðum fyrirvara á samfélagsmiðlum Eyrbyggjusögufélagsins. Meðfylgjandi mynd er tekin í Álftafirði við Kársstaði í janúar 2026.

Eyrbyggjusögufélagið fékk Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur til að teikna myndrefil byggðan á Sögu Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga. Hönnun er lokið og refill kominn á Snæfellsnes.

Nánari upplýsingar er að finna á
Facebook síðu refilsins

Fyrstu sporin tekin í Eyrbyggjurefil haustið 2025!

Alls starfa sjö kvenfélög á Snæfellsnesi og þau munu halda utan um saumaskapinn.

Refilhlutar eru á leið til kvenfélaganna og má búast við að saumaskapur hefjist af krafti í janúar 2026.

Eyrbyggjusaga er til í upplestri nokkurra lesara. Lestur Helga Hjörvar, frá Drápuhlíð í Helgafellssveit, árið 1961 hefur verið gerður aðgengilegur hjá Ríkisútvarpinu að beiðni Eyrbyggjusögufélagsins.

🎧 Eyrbyggja á Sarpi RÚV

🎧 Hlaðvarpið Saga Thing með þeim John og Andy hefur einnig fjallað um Eyrbyggju

Eyrbyggja á netinu:
Íslensk útgáfa: Snerpa útgáfa.
Ensk útgáfa: Sagadb & Public Library með formála

Úrdráttur úr sögunni gerður af Hörpu Hreinsdóttur er gagnlegur þegar sagan er lesin eða hlustað er á hana.

Ættartengsl í Eyrbyggju geta verið flókin en til að glöggva sig betur á því hefur Ólafur K. Ólafsson tekið saman gott yfirlit.

Frá stofnun Eyrbyggjusögufélagsins hefur verið bryddað upp á göngur á söguslóðir Eyrbyggjusögu á Snæfellsnesi.

Berserkjagata, Helgafell og Álftafjörður eru aðeins nokkrir þeirra staða sem kannaðir hafa verið með áhugasömu göngufólki.

Bendum áhugasömum á að fylgjast með dagskrá á Facebook síðu félagsins.

Örnefni Eyrbyggju má finna á vef Íslenska sögukortsins, sem hlotið hefur stuðning frá Miðaldastofu/Háskóli Íslands, Rannís, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, The British Academy og Emily Lethbridge á veg og vanda af ásamt fleirum.

Iceland Saga Map

Eyrbyggjusögufélagið var stofnað árið 2021 í Helgafellssveit. Tilgangur félagsins er að miðla sögunni sem er héraðssaga Snæfellsness á sem fjölbreyttastan máta.

Stjórn félagsins skipa: Jóhannes Eyberg Ragnarsson formaður, Ólafur K. Ólafsson gjaldkeri, Anna Melsteð ritari og verkefnastjóri og Guðlaug Sigurðardóttir meðstjórnandi.

Öllum er velkomið að ganga í félagið og með því að senda póst á eyrbyggja@eyrbyggja.is verður viðkomandi skráður í það, árgjald var ákveðið á aðalfundi 2025 kr. 10.000

Helstu tíðindi í starfsemi félagsins eru send á áskrifefndur á póstlista. Hér má skrá sig á póstlista félagsins.

Eytbyggjusögufélagið þakkar eftirtöldum aðilum fyrir stuðning við starfsemi félagsins:

  • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
  • Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi – Uppbyggingarsjóður
  • Helgafellssveit
  • Stykkishólmsbær
  • Sveitarfélagið Stykkishólmur
  • Eyja- og Miklaholtshreppur
  • Norræna félagið – Stykkishólmsdeild
  • Snæfellsbær
  • Grundarfjarðarbær
  • Ónafngreindir bakhjarlar fá einnig þakkir fyrir stuðninginn.

Ull er gull

Ull í Eyrbyggjusögurefil kemur af öllu Snæfellsnesi. Sauðfjárbændur á svæðinu tóku vel í það leggja til ull í verkefnið og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.

  • Guðlaug Sigurðardóttir og Jóhannes Eyberg Ragnarsson, Hraunhálsi
  • Sigurbjörg Ottesen og Gunnar Guðbjartsson, Hjarðarfelli
  • Ragnhildur Sigurðardóttir og Gísli Bjarkarson, Álftavatni
  • Guðný Jakobsdóttir og Guðjón Jóhannesson, Syðri-Knarrartungu
  • Harpa Jónsdóttir og Guðbjartur Gunnarsson, Hjarðarfelli
  • Guðrún Reynisdóttir, Gríshóli
  • Anna Melsteð og Sigurður Bjarnason, Stykkishólmi
  • Þórarinn Sighvatsson og Helga Harðardóttir, Skildi
  • Ólafur Tryggvason og Unnur Guðbjartsdóttir, Grundarfirði
  • Herdís Leifsdóttir og Emil Emilsson, Mávahlíð
  • Sigurður Kjartan Gylfason, Tungu
  • Lárus Hallfreðsson og Guðrún Hauksdóttir, Ögri
  • Ólafur Ólafsson og Laufey Kristmundsdóttir, Ólafsvík
  • Brynjar Hildibrandsson og Herborg Sigurðardóttir, Bjarnarhöfn
  • Guðmundur Ólafsson og Þuríður Ragnarsdóttir, Ólafsvík
  • Laufey Bjarnadóttir og Þröstur Aðalbjarnarson, Stakkhamri.